Þannig er best að eiga við stressið samkvæmt stjörnumerkinu þínu

kona ein hamingja ánægjaStressið getur tekið sinn toll af okkur og því er afar gott að þekkja sín mörk og vita hver besta leiðin er til að ná sér niður og slaka á.

Og í þessu geta stjörnumerkin einmitt hjálpað okkur.

Hér eru góð ráð varðandi það hvernig best er fyrir þig að höndla stressið, byggt á því í hvaða stjörnumerki þú ert.

 

Sjáðu hvað sagt er um þitt merki

HrúturHrúturinn

Orka hrútsins getur verið mikil og sterk. En þegar streitan tekur völdin getur hins vegar allt farið á aðra hliðina hjá hrútnum. Þá er besta leiðin fyrir fólk í hrútsmerkinu að ná líkamshitanum upp og svitna svolítið.

Að ná góðri líkamlegri hreyfingu getur haldið hrútnum vel stilltum andlega sem og orkumiklum.

 

nautNautið

Þegar nautið er stressað á það til að detta í óhollustuna. Það er mikilvægt fyrir nautið að hlusta á líkama sinn og þekkja mörkin hvenær hann er mettur og hvenær hann er svangur. Með því að velja skynsamlega það sem það lætur ofan í sig nær nautið betri tökum á stressinu því viðkvæmur líkami þess þolir illa ofát og óhollustu.

tvíburiTvíburinn

Fólk í þessu merki elskar að læra og tala enda er hugsun og samskipti ríkjandi þáttur þessa merkis. Tvíburanum líður alltaf betur ef hann fær svör við spurningum sínum og hefur staðreyndirnar á hreinu. Það auðveldar honum líka að ræða aðstæður sínar við góðan vin – en slíkt er ákaflega streitulosandi fyrir tvíburann. En það sem tvíburinn þarf líka að gæta sín á er að innbyrða ekki of mikið af upplýsingum, t.d. eins og að liggja endalaust á netinu í leit að upplýsingum. Því það eykur á streitu tvíburans.

krabbiKrabbinn

Krabbinn elskar að vera heima hjá sér og að eiga sitt eigið athvarf er honum mikilvægt. Að vera heima með fólkinu sínu og þeim hlutum sem skipta hann máli er ákaflega streitulosandi fyrir krabbann. Og þótt krabbinn sé oft upptekinn af hinu og þessu þegar hann er heima þá skiptir það miklu máli fyrir hann að fá tíma í ró og næði fyrir sjálfan sig. En þetta er nokkuð sem veitir krabbanum frið og ró.

 

ljónLjónið

Ljónið þarf að vera sískapandi og því kemur ekki á óvart að helsta slökun þeirra felist í því að koma með eitthvað nýtt inn í þennan heim. Hvort sem það er að mála, syngja eða elda þá líður ljóninu strax betur þegar það skapar eitthvað í stað þess að sitja og láta stressið fara með sig. Ljónið þarf því að láta ljós sitt skína vilji það vera laust við streitu.

meyjaMeyjan

Hún er harðákveðin í því að gera heiminn að betri stað. Það getur því verið ákaflega streituvaldandi fyrir hana þegar það stóra verkefni verður of yfirþyrmandi. Þess vegna er gott fyrir einstaklinga í meyjunni að gera eitthvað smærra þegar stressið tekur völdin. Minni verkefni eins og að þrífa, taka til og skipuleggja heimilið er alveg tilvalið fyrir meyjuna til að ná sé niður – sérstaklega þar sem hún sér afraksturinn strax.

vogVogin

Vogin er sögð merki samstarfsins. Þetta eru vitsmunalegar verur sem nota höfuðið við krefjandi aðstæður. En það er voginni afar mikilvægt að tala um hlutina og því er henni nauðsynlegt að eiga góðan vin sem hún getur talað við þegar erfiðleikar bjáta á. Að ræða málin hjálpar þessum einstaklingum að hugsa hlutina út í ystu æsar og það eitt og sér getur lækkað streitustuðul vogarinnar.

sporðdrekiSporðdrekinn

Spordrekinn er allt í senn, tilfinningavera, kynvera og andleg vera. Fyrir sporðdrekann er kynlíf einn besti streitulosandi þátturinn. En ef kynlíf er ekki í boði þegar á bjátar á sporðdrekinn afar auðvelt með að sleppa kynverunni og fara í þá andlegu. Það gerir hann með því að láta sig dreyma og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.

 

bogmaðurBogmaður

Bogmaðurinn þráir að vita um hvað lífið raunverulega snýst og hver tilgangur okkar hér á jörðinni er. Bara það að finna sinn eigin tilgang í lífinu getur hjálpað bogmanninum að viðhalda jákvæðu sjónarhorni. Fólk í þessu merki þarf að hafa markmið sín skýr til að þrífast. Þegar bogmaðurinn fer á taugum ætti hann að sækja innblástur til góðs kennara/mentors, lesa tilvitnanir fullar af innblæstri eða jafnvel halda sína eigin dagbók.

 

steingeitSteingeitin

Fólk í þessu merki elskar að skipuleggja. Geitin er alltaf að klifra upp á við og vill á sama tíma sjá leiðina upp. En ef leiðin verður þokukennd og hún er ekki viss um hvernig hún nái markmiðum sínum fer stressið að segja til sín. Þess vegna þarf steingeitin á öllu þessu skipulagi sínu að halda og gott er fyrir að hana að hafa nokkur leikplön í gangi. Til að draga úr stressi getur hjálpað að gera dagleg, vikuleg og mánaðarplön – sem og plön til fimm eða tíu ára.

vatnsberiVatnsberinn

Vatnsberinn er merki vona, drauma og væntinga – og þetta eru einstaklingar sem sjá allt fyrir sér. Þeir hafa enga þolinmæði fyrir gráköldum hversdagsleikanum. Þegar vatnsberinn er stressaður getur hann notað þennan hæfileika sinn að sjá hlutina fyrir sér. Með því að fara í þann leik og einbeita sér að því að sjá hlutina fyrir sér eins hann vill hafa þá getur vatnsberinn dregið úr stressi og endurheimt bjartsýnina. Það gæti hjálpað að gera svo kallað draumakort og hengja upp á vegg.

fiskurFiskurinn

Fiskurinn heillast af öllu andlegu og dulrænu. Þetta er síðasta merkið í stjörnuhringnum og í fiskinum safnast saman reynsla allra hinna merkjanna. Fiskurinn upplifir allar þær tilfinningar sem mannskepnan býr yfir. Einstaklingar í þessu merki eru samúðarfullir og næmir og þarfnast þess að gera eitthvað með þessar tilfinningar. Það besta sem fiskurinn getur gert fyrir sjálfan sig til að róa sig og ná sér niður, þegar stressið tekur yfirhöndina, er að hugleiða.

Heimildir – wellandgood

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...