Ég lofa ykkur því að þið verðið ekki svikin af þessu æðislega jólagóðgæti.
Ef þér finnst súkkulaði, karamella og salt vera góð blanda þá er þetta klárlega eitthvað fyrir þig.
Einfalt og fljótlegt
Það sem er líka mikill kostur er að þetta er afskaplega einfalt og fljótlegt í framkvæmd. Og það er nokkuð sem mér líkar. Mesti tíminn fer raunverulega í að kæla þetta niður áður en maður getur ráðist á þetta góðgæti og hakkað í sig.
Og já, þegar maður byrjar – getur maður ekki hætt!
Ég bauð upp á þetta góðgæti sem eftirrétt í matarboði núna á aðventunni og eins og við var að búast var þetta fljótt að hverfa. Enda alveg syndsamlega gott.
Það sem þarf
40 stk Ritz kex
1 bolli smjör
1 bolli sykur
½ tsk salt
1 tsk vanilludropar
2 pokar Rjómasúkkulaðidropar frá Nóa Siríus
kökuskraut
Aðferð
Hitið ofn að 180 gráðum.
Takið ofnskúffu og hyljið hana með álpappír. Spreyið á pappírinn með bökunarspreyi. Ég braut síðan pappírinn aðeins inn því 40 kökur þekja ekki alla skúffuna. Ekki freistast til þess að setja fleiri kökur því þá verður karamellan ekki nógu þykk ofan á.
Raðið kexkökunum þétt í ofnskúffuna.
Setjið smjör, sykur og salt í litla pönnu og bræðið við meðalhita. Látið allt bráðna saman og hrærið vel í. Látið sjóða og hrærið reglulega í svo smjörið skilji sig ekki. Látið sjóða í svona 7 til 9 mínútur eða þar til smjörblandan hefur brúnast.
Takið af hitanum og bætið vanilludropunum vel saman við.
Hellið blöndunni strax jafnt yfir kexkökurnar og notið síðan sleikju til að smyrja henni vel yfir svo hún þekji allt kexið. Þetta þarf að gerast nokkuð hratt.
Látið inn í ofn og bakið í 13 til 15 mínútur eða þar til þetta er orðið brúnt, gætið þess samt að brenna þetta ekki.
Takið út úr ofninum og dreifið súkkulaðidropunum jafnt yfir allt. Látið þá bráðna í svona 5 mínútur og notið síðan sleikju til að smyrja bráðnu súkkulaðinu vel yfir karamelluna.
Dreifið að lokum kökuskrauti yfir.
Látið kólna alveg. Ég skellti mínu út á svalir í frostið í svona 2 tíma.
Þegar þetta er orðið vel kalt takið þá og brjótið í óreglulega bita.
Þetta geymist í ca viku inni í ísskáp.
Njótið!
jona@kokteill.is