Flestar konur sækjast eftir hinu náttúrulega útliti þegar þær farða sig. Ekki satt?
Og við viljum að farðinn dragi fram það besta í andliti okkar.
Máttur kinnalitsins
Ég var orðin fullorðin þegar ég uppgötvaði mátt kinnalitsins og í dag finnst mér hann algjörlega ómissandi þegar ég farða mig. Kinnaliturinn rammar nefnilega inn förðunina og gefur okkur frísklegra og heilbrigðara útlit.
Reglan er bara þessi. Ekki setja kinnalitinn á kinnarnar fyrr en þú ert búin að bíða með farðann á í um það bil tíu mínútur svo hann nái að taka sig. Ef þú berð kinnalitinn á strax þá hverfur hann inn í meikið, eins og dögg fyrir sólu, á skömmum tíma.
En hvernig setur maður kinnalitinn á?
Þetta er góð aðferð – sjáðu hér í myndbandinu.
Sigga Lund