Þeir eru ófáir sem borða egg daglega, enda egg alveg afskaplega holl og góð.
En ertu að sjóða þau rétt?
Er til einhver rétt leið til að sjóða eggin?
Kannski ekki og eflaust hefur hver sinn háttinn á því. En því verður samt ekki neitað að þessi aðferð sem hér um ræðir gefur þér fullkomin harðsoðin egg.
Og hvernig gerir maður það?
Hver kannast ekki við að lenda í því að dökkur hringur myndast í kringum rauðuna, eða að hvítan er svo föst við skelina að hún endar nánast öll í ruslinu. Eflaust margir sem geta rétt upp hönd. En hvað sem því líður; hvernig harðsýður maður egg „rétt“?
Sjáðu það í myndbandinu hér að neðan. Þar sýnir Lo Bosworth hvernig hún notar edik og ísbað til að töfra fram hið fullkomna harðsoðna egg.