Matur með mexíkósku ívafi er góður og oftast ekki flókinn í framkvæmd – og uppskriftin að þessum stórgóðu quesadillas er tilvalin fyrir helgina.
Ekki láta það fæla ykkur frá að uppskriftin virðist löng því margt af þessu leynist í eldhússkápunum.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift. En hún mælir með að tvöfalda uppskriftina sé öll fjölskyldan í mat, því það sé hreinlega slegist um sneiðarnar.
Nautahakksfyllingin
- 1 bakki nautahakk
- svartur pipar
- paprikukrydd
- oregano
- cumin
- 1/2 dl vatn
- 1 msk sojasósa
- 1 msk sweet chili
- 1 hvítlauksrif
- 1 msk tómatpúrra
Aðferð
Steikið nautahakkið og kryddið eftir smekk (smakkið til).
Bætið vatni saman við og látið sjóða saman við vægan hita í 5 mínútur.
Bætið þá sojasósu, sweet chili, hvítlauksrifi og tómatpuré saman við, blandið vel og látið allt sjóða saman í 2-3 mínútur.
Sósan
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 1 tsk oregano
- svartur pipar
- cayenne pipar
- salt
Blandið öllu saman í pott og látið sjóða saman.
Guacamole
- 1 avokadó
- 1 dl sýrður rjómi
- 1 hvítlauksrif, pressað
- fínrifið hýði af 1 sítrónu
- cayenne pipar
- salt
Stappið avókadó og hrærið saman við hin hráefnin.
Og til að setja þetta saman þarf
- tortillur
- jalapeno
- maísbaunir
- rifinn ost
Setjið nautahakk, maísbaunir, sósu, rifinn ost og jalapeno á hverja tortillu.
Brjótið tortilluna saman í hálfmána og steikið á pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Skerið í sneiðar og berið strax fram með salati og guacamole.
Njótið!