Þessi dásemdar kokteill er sannkallaður sumardrykkur sem minnir okkur á sól, sjó og sand.
Þetta er hinn svalandi og frískandi Pina Colada og þótt það vanti sjóinn og sandinn má njóta hans á pallinum eða í stofunni við arineld og láta sig dreyma.
Áfengur og óáfengur
Hægt er að gera kokteilinn annað hvort áfengan eða óáfengan – og gefur sá óáfengi hinum áfenga lítið eftir í bragði.
Svo er sá óáfengi hollur og góður enda er ananasinn einstaklega góður fyrir líkamann.
Það sem þarf í þann áfenga
3 hluta góðan ananassafa
1 hluta af ljósu rommi
1 hluta kókosmjólk
Smáan klaka
Setjið allt saman í kokteilhristara og hristið þar til þetta er orðið ljóst, freyðandi og áferðin á drykknum mjúk.
Hellið í hátt og flott glas, skreytið með ananassneið og röri.
Njótið!
Það sem þarf í þann óáfenga
2 hluta kókosmjólk
1 hluta ananassafi
smátt niðurskorinn ferskur ananas (um 1 og ½ hluta)
smáan klaka
(Örlítinn púðursykur ef vill)
Setjið allt í blandara og hrærið (ca ½ mínúta) vel saman þar til drykkurinn er orðinn mjúkur að áferð.
Hellið í hátt og flott glas og skreytið með ananassneið og röri.
Njótið!