Nú þegar grilltíminn er að fara á fullt og góðan ilm leggur frá hverjum garði og svölum er freistandi að henda einhverju góðu og einföldu á grillið.
Mér finnst alltaf jafn gott að grilla kjúkling en verð leið á að gera alltaf það sama. Þessi uppskrift hefur fylgt mér núna í nokkur ár og er alveg rosalega góð – og ég mæli heilshugar með henni.
Þetta er fljótlegt, einfalt og gott, nákvæmlega eins og ég vil hafa það. Uppskriftina fékk ég hjá delish.com.
Það sem þarf
um hálft kíló kjúklingabringur
1 bolla Sweet Chili sósa
safa úr 2 límónum
¼ bolla sojasósa
vorlauk og límónubáta (ef vill) til að skreyta
Aðferð
Búið til mareneringu með því að hræra Sweet Chili sósu, sojasósu og límónusafa saman í skál.
Takið ½ bolla af blöndunni frá til að eiga til að bera á kjúklinginn eftir á.
Setjið kjúklinginn í stóran poka með frönskum rennilás, eða í djúpt fat, og hellið síðan blöndunni yfir. Geymið í ísskáp í að minnsta kosti 3 tíma eða jafnvel yfir nótt.
Grillið síðan kjúklinginn eins og ykkur finnst best, eða um 8 mínútur á hvorri hlið. Berið aðeins af blöndunni á kjúklinginn meðan þið grillið.
Takið af grillinu og berið mareneringuna aftur á kjötið að lokum. Skreytið með vorlauk og límónubátum ef vill.
Ég ber alltaf grillaðar sætar kartöflur fram með bringunum og eitthvað gott grillað grænmeti.
Njótið!
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com