Það er fátt betra á köldum og dimmum vetrardögum en heit og góð súpa.
Hér er uppskrift að æðislegri mexíkóskri kjötsúpu sem hentar allri fjölskyldunni. Það tekur stutta stund að útbúa hana og tilvalið að bera hana fram með nachos flögum eða nýbökuðu baguette brauði.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari uppskrift sem við mælum með núna í kuldanum.
Það sem þarf
- 200 gr nautahakk
- 1 laukur, fínhakkaður
- 1 rifið hvítlauksrif
- 3 msk ólívuolía
- 2 tsk cummin
- 2 tsk paprikuduft
- 1 tsk karrý
- 1 msk oreganó
- 3 msk tómatpuré
- 1 líter kjötkraftur (vatn og 1-2 kjötkraftsteningar, mjög gott að nota nauta- og grænmetisteninga)
- 4 kartöflur, skornar í teninga
- 1 rauð paprika, fínhökkuð
Aðferð
Steikið lauk og hvítlauk í olíunni og leggið til hliðar.
Steikið nautahakk með kryddum og tómatpuré.
Bætið laukunum út í ásamt kjötkrafti, kartöflum og papriku.
Sjóðið í 30 mínútur.
Berið fram með sýrðum rjóma og heitu baguette eða nachos flögum.
Njótið!