Súkkulaðibitakökur eru alltaf jafn góðar. Og þessi uppskrift að risastórri smáköku… sem er samt kaka er algjör snilld.
Þessi er gerð frá grunni í pönnu og síðan bökuð í pönnunni inni í ofni. Það þarf sem sagt ekkert að draga hrærivélina fram. Alveg einstaklega einfalt!
Tilvalið að skella í eina svona og hafa góðan vanilluís með.
Það sem þarf
½ bolli smjör
¼ bolli sykur
½ púðursykur
1 egg
1 tsk vanilludropa
1 ½ bolli hveiti
¾ tsk matarsóda
½ tsk salt
1 bolli súkkulaðidropa
Aðferð
Finnið til góða og þykka pönnu sem þolir að fara inn í ofn, og er 23 til 25 cm.
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Setjið smjörið á pönnuna og bræðið við lágan hita.
Takið pönnuna af hitanum og bætið sykri og púðursykri saman við smjörið – notið sleif til að hræra saman. Leyfið þessu síðan aðeins að kólna.
Hrærið egginu vel saman við og bætið svo vanilludropunum út í.
Setjið þá næst hveiti, salt og matarsóda út á pönnuna og hrærið vel saman.
Að lokum er súkkulaðið sett út í deigið. Gætið þess að blanda því varlega saman við en passið líka að það dreifist um allt deigið.
Dreifið úr deiginu og jafnið það vel út í pönnunni.
Setjið inn í ofn og bakið í 20 mínútur eða þar til kakan er orðin fallega gyllt.
Berið kökuna síðan fram heita/volga með ís.
Njótið!
Sjáið hér í myndbandinu hvernig þetta er gert
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com