Kynlíf er talið vega þungt í því að að halda hjónabandinu lifandi og hamingjusömu. Og því hefur lengi verið haldið fram að pör sem stunda kynlíf sem allra oftast séu hamingjusamari en önnur pör eða hjón.
En er örugglega samasemmerki á milli þess að stunda kynlíf oft, eða á hverjum degi, og þess að vera í hamingjusömu sambandi og/eða hjónabandi?
Hvað segja vísindin?
Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var af vísindamönnum við University of Toronto Mississauga eru pör sem stunda kynlíf á hverjum degi, eða mjög oft, ekki þau hamingjusömustu.
Þáttakendur sem voru á aldrinum 18 til 89 ára voru ýmist giftir, í ástarsambandi eða þá ólofaðir. En niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að pör sem stunda kynlíf einu sinni í viku eru þau hamingjusömustu. Þeir sem að rannsókninni stóðu benda á að kynferðisleg nánd sé mikilvæg í hjónabandinu, en kynlíf einu sinni í viku sé nóg til að viðhalda henni.
Stunda giftir minna kynlíf?
En hvað skyldi meðaltalið vera t.d. í Bandaríkjunum, þ.e. hversu oft ætli meðaljóninn stundi kynlíf?
Rannsóknin leiddi í ljós að dæmigerður fullorðinn einstaklingur stundar kynlíf tvisvar til þrisvar í mánuði, og á það bæði við gifta einstaklinga sem ógifta. Og það sem kom kannski sumum á óvart var að þeir sem eru giftir stunda meira kynlíf en þeir ógiftu – öfugt við það sem sýnt er t.d. í bíómyndum og sjónvarpsþáttum.