Þessi ómótstæðilega súkkulaðikaka er gerð úr fimm hráefnum. Hún er það gómsæt að erfitt er að trúa að hún sé líka holl – en hún er stútfull af andoxunarefnum. Og öll vitum við hvað þau eru góð fyrir okkur.
Svo það er spurning hvort ekki þurfi að baka þessa köku nokkrum sinnum í viku… bara svona fyrir heilsuna.
Þetta er ekki stór kaka enda þarf bara litla sneið af henni til að kæta bragðlaukana og gleðja sætindapúkann.
Það sem þarf
1 ¼ bolli frosin bláber (sem ætti að gera um ½ bolla og 2 msk maukað)
¾ bolli kakó
½ bolli kókossykur
1 msk matarsódi
1 tsk vanilludropa
Fyrir skrautið/Til að dreifa yfir kökuna
¼ bolli kókosmjöl/kókosflögur
nokkur frosin bláber
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Undirbúið lítið kringlótt form eða smelluform, svona ca 15 cm. Setjið bökunarpappír í botninn og einnig hliðar, eða bara í botninn og berið síðan örlitla kókosolíu á hliðarnar.
Látið bláberin þiðna aðeins og setjið þau síðan í blandara og maukið vel.
Blandið kakó, kókossykri og matarsóda saman í skál.
Bætið síðan vanilludropum og bláberjamaukinu (½ bolla og 2 msk) út í og hrærið allt vel saman.
Setjið blönduna/deigið síðan í formið og inn í ofn.
Bakið í 25 mínútur.
Á meðan kakan er í ofninum takið þá kókosmjöl og nokkur hálffrosin bláber og blandið saman í skál. Kókosmjölið á að verða fjólublátt og til þess gæti þurft að kreista bláberin aðeins til að fá safann úr þeim.
Takið kökuna út úr ofninum og leyfið henni að kólna í að minnsta kosti hálftíma.
Rennið hníf meðfram kökunni í forminu til að losa um hana og losið hana úr.
Dreifið að lokum fjólubláa kókosmjölinu yfir.
Berið kökuna fram volga eða kalda.
Njótið!
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert