Það er alltaf jafn gott að geta hent í eitthvað einfalt og gott í miðri viku þegar allir eru á fullu.
Hér er uppskrift að ofureinföldum pylsupottrétti sem tekur enga stund að útbúa og slær í gegn hjá krökkunum.
Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur uppskrift að pylsupottrétti með beikoni og sweet chili rjómasósu.
Það sem þarf
- 10 pylsur (t.d. SS-pylsur)
- 1 bréf beikon
- 1 peli rjómi (2,5 dl)
- 1 dl sýrður rjómi
- 2 tsk sojasósa
- 2 msk sweet chili sósa
- salt
- pipar
Aðferð
Skáskerið pylsurnar og skerið beikonið í bita.
Steikið pylsurnar og beikonið á pönnu þar til það byrjar að fá fallega steikarhúð.
Bætið rjóma, sýrðum rjóma, sojasósu og sweet chili sósu á pönnuna og leyfið að sjóða við vægan hita um stund svo að sósan fái bragð frá pylsunni og beikoninu.
Smakkið til með pipar og salti.
Njótið!