Þessi súkkulaðikaka er einstaklega mjúk og með miklu súkkulaðibragði – dásamleg í alla staði. Og er betri en allt sem gott er.
Kakan geymist vel og helst mjúk alveg þar til hún er búin.
Er ekki tilvalið að skella í eina svona fyrir fjölskylduna og sunnudagskaffið?
Það er hún Svava vinkona okkar á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir þessari dásemdar uppskrift með okkur.
Mjúk amerísk súkkulaðikaka
- 3 bollar hveiti
- 2½ bolli sykur
- 1 msk + 1 tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- 1 bolli kakó
- 1 + 1/3 bolli canola olía (eða önnur bragðdauf olía)
- 1 ½ bolli buttermilk (ég set 1 msk af sítrónusafa í bolla, fyllti hann svo af mjólk og læt blönduna standa í 10 mínútur (geri 1 ½ skammt fyrir þessa uppskrift. Það má þó líka nota súrmjólk í staðinn fyrir buttermilk)
- 3 stór egg
- 1 ½ bolli nýuppáhellt sterkt kaffi
- 1 tsk vanilludropar
Aðferð
Hitið ofninn í 175°.
Smyrjið 2 bökunarform og setjið bökunarpappír í botninn á þeim.
Setjið hveiti, sykur, matarsóda, salt og kakó í hrærivélaskál og hrærið saman.
Með hrærivélina stillta á hægan hraða er olíu og buttermilk hrært saman við þurrefnin og þar á eftir eggjunum, einu í einu.
Hrærið heitu kaffi í mjórri bunu saman við og að lokum vanilludropum.
Hrærið saman þar til blandan er slétt og kekkjalaus.
Skiptið deiginu í bökunarformin og bakið í 30-35 mínútur eða þar til prjóni stungið í kökurnar kemur með mjúkri mylsnu upp.
Súkkulaðikrem
- 680 g suðusúkkulaði
- 1 ½ bolli rjómi
Grófhakkið súkkulaðið og setjið ásamt rjómanum í skál yfir vatnsbaði.
Leyfið súkkulaðinu að bráðna og hrærið síðan í blöndunni með píski.
Látið kremið kólna áður en það er sett á kökuna (kremið þykkist við það).