Vissir þú að það er afar mikilvægt að þrífa uppþvottavélina á heimilinu?
Ekki átta sig allir á því þar sem þetta er það tæki sem hamast sjálft við að þrífa húsbúnað heimilisins. En með tímanum safnast upp sápufroða og matarleifar sem eru gróðrarstía sýkla. Og þegar þannig er komið vinnur vélin ekki eins vel.
Samkvæmt sérfræðingum er æskilegt að þrífa uppþvottavélar heimilisins einu sinni í mánuði. Aðrir telja þó að á sex mánaða fresti sé nóg. Hvort heldur sem er þá skiptir máli að þetta sé gert reglulega.
Hér er einföld aðferð þar sem einungis er notast við náttúruleg efni og eitthvað sem flestir eiga í eldhússkápunum
Númer eitt
Byrjaðu á því að taka neðstu skúffuna út og þrífðu í kringum niðurfallið í botni vélarinnar. Gættu þess að þar séu engar matarleifar eða annað slíkt.
Númer tvö
Hafðu vélina alveg tóma.
Fylltu bolla af ediki (hvítvínsedik) og settu í efri hillu/skúffu vélarinnar.
Kveiktu á vélinni og notaðu vel heitt þvottakerfi.
Láttu vélina fara í gegnum allt kerfið.
Þetta hreinsar fitu og skít – og eyðir vondri lykt úr vélinni.
Númer þrjú
Taktu matarsóda og dreifðu honum vel yfir allan botninn á uppþvottavélinni.
Settu vélina á stutt kerfi en með góðum hita.
Þetta hreinsar vélina enn frekar og hún verður betur lyktandi og skínandi hrein að innan.
Hér er um að ræða ósköp einfalda aðferð í þremur stigum sem hjálpar okkur að halda þessu mikilvæga heimilistæki snyrtilegu og hreinu.