Hvítlaukur er einstaklega hollur, góður og gefur matnum mikið bragð. Örlítill hvítlaukur, eða mikið af honum eins og ég vil hafa það, getur algjörlega breytt bragði matarins og er alveg ómissandi í eldhúsinu.
Jamie Oliver gefur okkur góð ráð
En vissir þú að það skiptir máli hvernig við meðhöndlum hvítlaukinn upp á bragðið að gera?
Listakokkurinn Jamie Oliver er með það alveg á hreinu. Hvernig við skerum, söxum og kremjum hann gefur ólíkt bragð.
Hann segir það kannski hljóma furðulega en meðhöndlunin og undirbúningurinn skipti virkilega miklu máli upp á bragðið. Og við trúum honum Jamie auðvitað fullkomlega!
Hér sýnir hann okkur nokkrar aðferðir við hvítlaukinn
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com