Margar konur á breytingaskeiði án þess að átta sig á því

Finnst þér líkami þinn orðinn frekar óútreiknanlegur?

Lætur hann kannski ekki lengur að stjórn?

Ertu að pirra þig á smámunum sem skipta nákvæmlega engu máli?

Og ertu allt oft þreytt og uppgefin?

Eru blæðingarnar orðnar óreglulegar eða breyttar?

Finnst þér þú kannski líka stundum vera orðin gömul og svolítið fúl?

Þú vaknar bara ekki einn morguninn og veist það

Ef þú hefur svarað flestu af þessu játandi þá ertu að öllum líkindum komin á breytingaskeiðið. Líkaminn lætur vita þegar þetta tímabil er hafið en margar konur veita því í fyrstu litla eftirtekt og hlusta ekki á líkama sinn.

Ekki er alltaf auðvelt að vita nákvæmlega hvort þetta tímabil sé hafið þar sem þetta er ekki þannig að þú vaknar einn morguninn og bara veist að þetta er byrjað. Nei, þannig er það nefnilega ekki. Þetta gerist oft hægt og rólega.

Margt er að gerast og breytast í líkamsstarfseminni og því geta fylgt bæði andleg og líkamleg óþægindi. Ýmis einkenni og fylgifiskar sem við kærum okkur ekkert sérstaklega um fara að gera vart við sig. Og vissulega getur þetta stundum verið tómt vesen fyrir konur.

Breytingaskeiðið er ekki eingöngu eitt langt tímabil, heldur er því raunverulega skipt upp í þrjú stig. Þessi stig eru yfirleitt skilgreind þannig; fyrir tíðahvörf, tíðahvörf og eftir tíðahvörf. Fyrsta tímabilið er undanfari tíðahvarfanna sjálfra sem þýðir að konan er á breytingaskeiðinu og getur fundið fyrir ýmsum breytingum og óþægindum. Segja má að þetta sé aðaltímabil þessa ferlis og það tímabil sem getur verið einna erfiðast.

Annað tímabilið, tíðahvörfin sjálf, er kannski frekar vendipunktur en tímabil. Og þegar kemur að þriðja tímabilinu er breytingaskeiðinu lokið.

En hvað einkennir hvert stig fyrir sig?

1. Á fyrsta stigi

Á fyrsta stigi verða blæðingar óreglulegri og ekki er lengur hægt að reikna með því að tíðahringurinn sé nákvæmlega eins frá einum mánuði til annars. Þetta stig einkennist af nokkurri óreglu, það er hversu lengi blæðingarnar standa yfir og hversu miklar þær eru. Tíðahringurinn er ekki jafn áreiðanlegur og áður því nú er hann stundum stuttur og stundum langur. Í sjálfu sér er ekki hægt að gera ráð fyrir neinu öruggu á þessu tímabili.

Á þessu stigi geta konur líka farið að finna fyrir hitakófum og auknum geðsveiflum. Konur geta byrjað að finna fyrir þessum einkennum fyrirtíðahvarfa á aldrinum 35-51 árs. Tímabilið getur síðan staðið yfir í allt frá tveimur árum og upp í tólf ár. Næstum allar konur finna fyrir einhverjum einkennum breytingaskeiðs á meðan þær hafa enn tíðir.

2. Á öðru stigi

Þegar komið er að tíðahvörfunum sjálfum má segja að komið sé að ákveðnum þáttaskilum. Einkenni þessa stigs er að eggjastokkarnir hætta að þroska og losa egg. Talað er um að konur hafi tíðahvörf þegar þær hafa ekki haft blæðingar samfellt í tólf mánuði. Venjulega gerist þetta í kringum 51 árs aldurinn, það er þegar tímabilinu fyrir tíðahvörf lýkur. Hér er auðvitað um meðaltal að ræða og geta konur því bæði verið yngri eða eldri þegar þetta gerist.

3. Á þriðja stigi

Um leið og breytingaskeiðið sjálft er gengið yfir er komið að þriðja og síðasta stiginu, það er eftir tíðahvörf. Þegar hér er komið sögu er ekki ástæða til annars en að gleðjast. Blæðingar eru loksins hættar svo þær reglulegu heimsóknir hafa loksins kvatt eftir 40 ár eða svo. Nú þarf ekki lengur að taka á móti þeim á tveggja til fjögurra vikna fresti. Og ef það er ekki tilefni til að fagna!

Hér er gróf skilgreining á þessum þremur stigum

Fyrir tíðahvörf: Óreglulegar blæðingar – miklar blæðingar – litlar blæðingar – hitakóf – geðsveiflur.

Tíðahvörf: Tímamót – eggjastokkar hætta að losa egg – engar blæðingar í tólf mánuði.

Eftir tíðahvörf: Blæðingar alveg hættar.

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...