Sænskar kladdkökur eru bæði einstaklega góðar og einfaldar í gerð.
Og þessi hér er alveg tilvalin fyrir helgina og gott að eiga þegar gesti ber að garði. Enda geymist hún svo vel í ísskápnum – það er að segja ef hún klárast ekki strax.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
Í kökuna
- 3 egg
- 3,5 dl sykur
- 1 tsk vanillusykur
- 4-5 msk kakó
- 2 dl hveiti
- 150 g brætt smjör
Í kremið
- 50 g smjör við stofuhita
- 2 msk kalt kaffi
- 2,5 dl flórsykur
- 1 msk kakó
- 1 tsk vanillusykur
Yfir kökuna
- kókosmjöl
Aðferð
Hitið ofninn í 175°.
Bræðið smjörið og látið það kólna aðeins.
Hrærið saman egg og sykur.
Blandið þurrefnunum saman og hrærið þau saman við eggjablönduna.
Hrærið að lokum smjörinu saman við deigið. Athugið að þeyta aldrei deigið heldur bara að hræra það saman því ef það myndast of mikið loft í deiginu er hætta á að það verði þurrt.
Smyrjið lausbotna form og setjið deigið í það.
Bakið kökuna í miðjum ofni í 20-30 mínútur. Kakan á að vera blaut í miðjunni þegar hún er tekin úr ofninum. Látið hana standa í ísskáp í nokkra tíma áður en kremið er sett á hana.
Hrærið öllum hráefnum í kremið saman og setjið yfir kökuna. Stráið kókosmjöli yfir.
Geymið kökuna síðan í ísskáp.
Og njótið!