Við höfum fjallað töluvert um túrmerik hér á Kokteil enda virðist þessi litla appelsínugula rót búa yfir einstökum eiginleikum.
Þessi undra rót hefur verið notuð sem krydd, lækningajurt og litarefni í Suðaustur-Asíu frá því um 600 fyrir Krist. Það er því ekkert nýtt að hún sé notuð í heilsufarslegum tilgangi.
Eitt öflugasta andoxunarefni svo vitað sé
Túrmerik hefur verið notað um aldir gegn bólgum í líkamanum, liðagigt, magavandamálum, ýmsu ofnæmi, lifrarvandamálum og brjóstsviða. Þetta er eitt öflugasta andoxunarefni svo vitað sé og eykur það blóðflæði og þanþol æða. Þannig kemur það jafnvægi á blóðþrýstinginn og bætir um leið hjarta- og æðakerfið.
Þá er það talið koma í veg fyrir skemmdir á innri líffærum, eins og t.d. heila, og hefur túrmerik verið viðfangsefni ótal vísindarannsókna undanfarin ár í tengslum við Alzheimer og Parkinson. Þá er einnig talið að jurtin geti haft áhrif á vöxt krabbameinsfruma.
Það má með sanni segja að túrmerik sé ofurrót enda virðist hún hafa ofurkraft. Hún er stútfull af andoxunarefnum og eins og fram kom hér að ofan hefur hún góð áhrif á heilann. Og er hún einnig talin gagnast afar vel gegn þunglyndi.
Til að fjölga enn frekar möguleikum á því að bæta túrmeriki inn í fæðuna er hér uppskrift að svalandi, hollum og góðum drykk.
Uppskriftin miðast við fjóra skammta af límonaði.
Það sem þarf
4 bolla af sódavatni
2 matskeiðar af fersku niðurrifnu túrmeriki eða dufti (kryddinu)
4 matskeiðar hunang eða hreint hlynsíróp
safa úr 1 ½ sítrónu eða límónu
Aðferð
Blandið öllu saman í könnu, hrærið léttilega svo gosið fari ekki úr og berið fram kalt – skreytið með sítrónusneið ef vill.