Konur sem neyta bólguvandandi fæðu líklegri til að þjást af þunglyndi

kona óhamingja vansæl vandræði áhyggjjur þunglyndiTalið er að 12-15 þúsund Íslendingar þjáist af þunglyndi á hverjum tíma. Sjúkdómurinn er því býsna algengur hér á landi.

Fleiri konur glíma við þunglyndi en karlar. Í Bandaríkjunum er talið að fimmta hver kona þjáist af þunglyndi einhvern tíman á lífsleiðinni. Sjúkdómnum fylgja skert lífsgæði, minnkaðar lífslíkur og aukin hætta á öðrum sjúkdómum, þar á meðal eru hjarta-og æðasjúkdómur, sykursýki og ýmis krabbamein.

Þunglyndi hefur margþætt einkenni. Þau eiga það sameiginlegt að draga úr lífsgleði og framtakssemi. Hæfni einstaklingsins til að takast á við daglegt líf skerðist og erfiðara verður að sinna daglegum athöfnum, rækta fjölskyldu og vini.

Langvinnar bólgur orsökin

Truflanir í líkamsstarfsemi þunglyndra eiga margt sameiginlegt með þeim sem sjást hjá einstaklingum með hjarta-og æðasjúkdóma og efnaskiptavillu. Þunglyndir sýna oft merki um insúlínmótstöðu og truflanir í starfsemi æðaþels. Þá má oft finna merki um langvinna, hægfara bólguvirkni hjá einstaklingum með þunglyndi.

Svipuð bólguvirkni finnst oft hjá sjúklingum með hjarta-og æðasjúkdóma, sykursýki og sum krabbamein. Því hafa sumir fræðimenn talið mögulegt að langvinnar bólgur séu mikilvæg orsök allra þessarra sjúkdóma og hugsanlega þráðurinn sem tengir þá saman.

Leiðir rangt mataræði til þunglyndis?

Margar rannsóknir benda til þess að mataræði geti bæði dregið úr og aukið bólguvirkni í líkamanum. Því er hugsanlegt að mataræði okkar geti haft áhrif á hættuna á að fá þunglyndi. Bandarískir vísindamenn við Harvard háskólann í Boston leituðust nýlega við að svara þessarri spurningu í stórri faraldsfræðilegri rannsókn á konum. Niðurstöðurnar voru birtar í tímaritinu “Brain, Behaviour and Immunity”.

En hvað er bólguvaldandi mataræði?

Rannsókn bandarísku vísindamannanna náði til 43.865 kvenna sem tóku þátt í svokallaðri NHS rannsókn á tímabilinu 1996 – 2008. Konurnar svöruðu reglulega spurningum um mataræði sitt á tímabilinu.

Til að komast að því hvort bólguvaldandi mataræði tengdist hættu á þunglyndi þurftu vísindamennirnir að skilgreina hvað fæða veldur bólgum. Til þess notuðu þeir hóp kvenna sem rannsakaður var á árabilinu 1989-1990. Mæld var bólguvirkni í blóði kvennanna og hún borin saman við niðurstöður spurningalista um mataræði. Á þennan hátt var hægt að reikna fylgni á milli mismunandi mataræðis og bólguvirkni.

Fæðumynstur sem hafði í för með sér aukna bólguvirkni einkenndist af hlutfallslega lítilli neyslu á víni, kaffi, ólífuolíu, gulu grænmeti og grænu laufgrænmeti – en hlutfallslega mikilli neyslu á sykruðum gosdrykkjum, unnum kornvörum, rauðu kjöti, sykurlausum gosdrykkjum og smjörlíki.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Miðjarðarhafsmataræðið gæti verið vörnin

Rannsókn bandarísku vísindamannanna leiddi í ljós að konur sem neyttu fæðu sem hafði sterka tengingu við aukna bólguvirkni voru líklegri til að fá þunglyndi en konur sem neyttu fæðu sem hafði veika tengingu við aukna bólguvirkni. Töldu vísindamennirnir líklegt að tengsl mataræðis við þunglyndi skýrist að einhverju leyti af áhrifum mismunandi fæðutegunda á bólgusvörun.

Niðurstaðan er í samræmi við rannsóknir sem sýnt hafa að þeir sem halda sig við áherslur Miðjarðarhafsmataræðisins þegar kemur að fæðuvali eru í minni hættu á að þróa með sér þunglyndi. Miðjarðarhafsmataræðið inniheldur mikið af fæðutegundum sem draga úr bólguvirkni.

Þunglyndi, hjarta- og æðasjúkdómar og offita

Orsakir þunglyndis eru margþættar. Langvinn hægfara bólguvirkni kann að vera einn af þeim þáttum sem hefur áhrif á tilurð sjúkdómsins. Slík bólguvirkni getur jafnframt skýrt þá sterku fylgni sem er á milli þunglyndis, hjarta-og æðasjúkdóma, offitu, sykursýki og sumra krabbameina.

Rannsóknin sannar ekki að neysla á fæðu sem eykur bólguvirkni valdi þunglyndi. Faraldsfræðilegar rannsóknir af þessu tagi geta yfirleitt ekki sannað að um orsakasamhengi sé að ræða. Þrátt fyrir það hefur rannsóknin vakið talsverða athygli og er niðurstöðurnar enn ein vísbendingin um að mataræði okkar getur haft mikil áhrif á heilsu okkar og líðan.

Greinin birtist á MATARAEDI.IS

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...