Okkur hér á Kokteil finnst alltaf jafn gaman að fara í „brunch“, nú eða þá að útbúa okkar eigin í heimahúsi sem er alls ekki síðra.
Fullkominn í „brunch-inn“
Það sem síðan fullkomnar góðan „brunch“ er auðvitað rétti drykkurinn og er óhætt að segja að kokteillinn Mimosa sé hinn fullkomni „brunch“ drykkur.
Afar einfalt er að útbúa Mimosa en gæta þarf þess að drykkurinn sé ískaldur þegar hann er borinn fram. Því þannig er hann langbestur.
Það sem þarf
Kampavínsglös
Kampavín eða freyðivín
Appelsínusafa
Aðferð
Veljið þurrt vín en ekki sætt. Cava frá Spáni er góður kostur í Mimosa og það sama má segja um þurrt Prosecco.
Mjög gott er að útbúa sinn eigin appelsínusafa en annars er nýkreistur safi úr búðinni ágætur kostur.
Klassískur Mimosa kokteill er helmingur freyðivín á móti helming af appelsínusafa.
Hellið víninu fyrst í glasið og hallið glasinu, fyllið síðan upp með safanum. Þannig blandast kokteillinn betur. Ekki hræra í honum því þá verður hann flatur.
Svo er bara að njóta með ljúffengum mat og góðu fólki.