Við erum farin að hlakka til jólaundirbúnings og erum byrjuð að baka smákökur og slíkt til að njóta á aðventunni.
Hér er góð uppskrift að súkkulaðibitakökum. En þessar amerísku kökur eru klassískar og renna ljúft niður með kaldri mjólk eða heitu súkkulaði á dimmum dögum aðventunnar.
Uppskriftin miðast við um 24 til 30 stórar kökur.
Það sem þarf
2 ¼ bolli hveiti
1 teskeið matarsódi
2 teskeiðar maizenamjöl/kornsterkja
1 teskeið salt
170 gr ósaltað smjör, bráðið
135 gr dökkur púðursykur
100 gr sykur
2 stór egg
2 teskeiðar vanilludropar
180-200 gr dökkt súkkulaði (55-70%)
Aðferð
Byrjið á að bræða smjörið svo það nái að kólna vel.
Skerið súkkulaðið í stóra bita.
Blandið hveiti, matarsóda, kornsterkju og salti saman í skál.
Setjið bráðna smjörið í aðra skál og hrærið púðursykrinum og sykrinum saman við.
Hrærið síðan einu eggi í einu saman við sykurblönduna.
Setjið þá vanilludropana út og hrærið vel saman.
Bætið hveitinu saman við og hrærið vel en ekki harkalega.
Blandið súkkulaðibitunum varlega saman við deigið og hrærið saman með sleif eða sleikju.
Setjið filmu yfir deigið og látið bíða í ísskáp í nokkra tíma eða yfir nótt.
Þegar þið ætlið síðan að baka kökurnar hitið þá ofninn að 165 gráðum.
Undirbúið ofnskúffur með smjörpappír.
Notið stóra skeið eða ísskeið til að búa til kúlur úr deiginu og setjið á plöturnar.
Passið að hafa nægilegt bil á milli þeirra.
Bakið í 11 til 13 mínútur þar til þær eru gylltar á útjöðrum. Þær geta litið út fyrir að vera of lítið bakaðar. En leyfið þeim að kólna á plötunni þar til þær eru nógu stökkar til að losa þær í burtu – líklega 5 til 10 mínútur í viðbót.
Gott er að eiga smá súkkulaði í viðbót til að setja ofan á hverja köku um leið og þær koma út úr ofninum.
Látið þær síðan kólna alveg á grind.
Sjáið hér í myndbandinu hvernig þetta er gert