Léttur og góður réttur sem hentar í miðri viku jafnt sem helgarmatur.
Indónesískar kjúklinganúðlur sem bragð er af – og hreint ekki svo flókinn í framkvæmd. Uppskriftin miðast við fjóra.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari góðu uppskrift.
Það sem þarf
Bami Goreng (uppskrift fyrir 4)
- 250 g eggjanúðlur (ósoðnar)
- 4 msk olía (ekki ólífuolía)
- 125 g vorlaukur
- 1 brokkólíhöfuð
- 2 gulrætur
- 700 g kjúklingabringur eða úrbeinuð læri
- 1 tsk karrý
- 1-2 tsk sriracha (sterk chillísósa)
- 1/2 dl kecap manis
- 1/2 dl sojasósa
- 2 tsk sesamolía
- 2 dl vatn
- 1 kjúklingateningur
- 1 hvítlauksrif
Aðferð
Sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum á pakka. Hellið vatninu af þeim og kælið núðlurnar svo þær haldi ekki áfram að soðna.
Skerið brokkolí, salatlauk og gulrætur niður og hafið tilbúið á bakka.
Skerið kjúklinginn í bita og steikið á pönnu. Kryddið hann með salti og pipar. Takið kjúklinginn af pönnunni og leggið til hliðar.
Bætið olíu og sesamolíu á pönnuna og steikið grænmetið ásamt pressuðu hvítlauksrifi í nokkrar mínútur. Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna, kryddið með karrý og sriracha og hrærið öllu vel saman.
Setjið vatn, kjúklingatening, kecap manis, sojasósu og núðlurnar á pönnuna og látið allt hitna saman í nokkrar mínútur. Smakkið til með sojasósu, kecap manis og sriracha.
Gott er að bera núðlurnar fram með sriracha, kecap manis og sweet chili sósu til hliðar svo hver og einn geti bragðbætt núðlurnar eftir smekk.
Njótið!