Ef þér finnst parmesan ostur góður og vilt hafa snarlið þitt og snakkið í hollari kantinum ættirðu að prófa þessar kúrbítsflögur.
Þetta er ótrúlega einfalt og þægilegt í framkvæmd og tekur ekki nema um hálftíma að gera frá A til Ö.
Svo má auðvitað líka bjóða upp á flögurnar sem meðlæti með mat.
Það sem þarf
2 stóra kúrbíta
gróft salt
nýmulinn svartur pipar
1 ½ bolla parmesan ost
Aðferð
Hitið ofninn að 200 gráðum.
Setjið smjörpappír í ofnskúffu/ofnplötu.
Skerið kúrbítinn í sneiðar og raðið sneiðunum síðan á ofnplötuna.
Kryddið þær með salti og pipar og setjið síðan rifinn ost á hverja og eina flögu.
Bakið í ofninum 20 til 25 mínútur, eða þar til sneiðarnar eru gylltar og stökkar.
Berið fram með marinara sósu eða bara hverju því sem hugurinn girnist – og þess vegna einar og sér.
Þú færð allt hráefni í þessa uppskrift í