Meðlæti með hátíðarmatnum skiptir miklu máli og getur algjörlega skipt sköpum varðandi heildarútkomuna.
Ekki er óalgengt að fólk festist í sömu réttunum og haldi sig við þá. En svo eru aðrir sem vilja alltaf vera að prófa eitthvað nýtt.
Ljúffengt og einfalt
Ég elska að prófa nýja rétti og gleðst alltaf jafn mikið þegar ég finn uppskriftir sem eru bæði afar ljúffengar sem og einfaldar í framkvæmd.
Þessa dýrindis uppskrift að ofnbökuðum gulrótum prófaði ég að gera fyrir nokkrum árum síðan og bar þær fram með kalkún. Uppskriftin er amerísk og ég verð að segja ykkur það að þetta eru þær allra bestu gulrætur sem ég hef fengið. Svo passa þær líka með öllu.
Þessar eru fastur liður á veisluborðinu hjá mér.
Það sem þarf
10 til 15 gulrætur
1/3 bolli bráðið smjör
½ bolli sykur
1 tsk fínt sjávarsalt
½ tsk kanill
1/3 bolli sjóðandi vatn
1 msk appelsínusafi
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Snyrtið gulræturnar og komið þeim fyrir í eldföstu grunnu móti.
Blandið smjöri, sykri, salti og kanil saman í skál og hrærið vel saman. Á meðan þetta er hrært bætið þá rólega sjóðandi vatninu saman við og að lokum appelsínusafanum.
Hellið blöndunni vel yfir gulræturnar og reynið að þekja þær allar.
Setjið álpappír yfir mótið til að loka því.
Bakið í ofninum í 60 til 90 mínútur, fer eftir stærð og þykkt gulrótanna.
Takið þá út úr ofninum og setjið á bakka. Síðan má taka vökva úr fatinu og dreifa yfir gulræturnar áður en þær eru bornar fram – en það er ekki nauðsynlegt.
Njótið síðan með hverju því sem á borðum er.
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com