Það er algjörlega tilvalið að útbúa þetta girnilega granola um helgina til að eiga í morgunmatinn út vikuna.
En þetta er bæði ofur einfalt og fljótlegt að útbúa. Við notum þetta heimagerða granóla t.d. út í jógúrtið okkar á morgnana.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- 3 bollar tröllahafrar
- 1 bolli grófsaxaðar pekanhnetur
- 2 tsk kanil
- ¼ tsk salt
- ½ bolli ljós púðursykur
- ¼ bolli vatn
- 2 msk bragðlaus olía
- 1 msk vanillusykur
Aðferð
Hitið ofninn í 150° og leggið bökunarpappír á tvær ofnplötur.
Blandið tröllahöfrum, pekanhnetum, kanil, vanillusykri og salti í skál.
Blandið ljósum púðursykri og ¼ bolla af vatni saman í pott og hitið að suðu yfir miðlungsháum hita. Hrærið í þar til sykurinn hefur bráðnað. Bætið olíunni saman við.
Takið pottinn af hitanum og hellið yfir þurrefnin. Hrærið í blöndunni þar til allt hefur blandast vel.
Skiptið blöndunni á bökunarplöturnar og dreifið úr þeim.
Bakið í 15 mínútur, hrærið í granólanu og færið plöturnar þannig að sú sem var ofar í ofninum fari fyrir neðan og öfugt.
Bakið áfram í 10-15 mínútur til viðbótar eða þar til granólað er komið með fallegan lit.
Tröllahafrarnir geta verði mjúkir þegar þeir koma úr ofninum en þeir verða stökkir þegar þeir kólna. Látið kólna alveg á bökunarplötunum.