Ef þú ert vanur/vön að steikja beikonið á pönnu er kominn tími til að segja skilið við þá sóðalegu aðferð.
Það eru nefnilega til fleiri leiðir til að matreiða þessa dásemd. Og ein er sú að baka það.
Þetta er svo einfalt
Settu álpappír í botninn á ofnplötu og settu ofngrind yfir. Raðaðu svo beikoninu ofan á grindina. Með því að gera þetta svona þarftu ekki að þerra olíuna af beikoninu í eldhúspappír áður en þú berð það fram því hún lekur á álpappírinn.
Því næst skellir þú þessu í kaldan ofninn og stillir hann á 200 gráður. Beikonið byrjar að eldast á meðan ofninn hitar sig og þegar hann nær tilætluðu hitastigi er það fljótt að eldast og verða stökkt. Þetta tekur um 15-20 mínútur – en fer eftir því hvernig þú vilt hafa beikonið þitt.
Þegar beikonið er tilbúið, að þínu mati, taktu það þá úr ofninum og leyfðu því að kólna aðeins áður en þú tekur það af grindinni og berð það fram.
Mmmmm… verði þér að góðu!
Sjáðu hér hvernig þetta er gert