Blessaðir hormónarnir stjórna öllu í líkamanum.
Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá hafa hormónarnir mikið með það að segja hvernig okkur líður og má segja að þeir stjórni skapinu, orkunni, kynhvötinni, meltingunni og hvernig húð okkar lítur út.
Það er því eins gott að leitast við að hafa jafnvægi á þeim.
Hormónar, skjaldkirtillinn og krampar
Ýmislegt getur spilað inn í hormónaójafnvægi og má þar t.d. nefna breytingaskeið og barneignir.
Hér er uppskrift að gullnum drykk sem hjálpar til við að koma jafnvægi á hormóna líkamans – en auk þess er hann góður fyrir vanvirkan skjaldkirtil og við krömpum. Best er að drekka drykkinn daglega, en margir neyta hans einmitt á kvöldin.
Gullin mjólk
Það sem þú þarft
Kókosolía
Túrmerik
Vatn
Svartur pipar
Kókosmjólk
Kanill
Hunang
Hlynsíróp
Cayenne pipar (fyrir þá sem vilja)
Aðferð
Þú byrjar á því að útbúa túrmerikblöndu úr 5 msk af kókosolíu, ½ bolla af túrmeriki, 1 bolla af vatni og 1 ½ tsk svörtum pipar.
Setur þetta allt saman í pott.
Leyfir þessu síðan að sjóða í um 10 mínútur.
Þegar þetta hefur kólnað geturðu svo geymt þetta í ísskápnum í 2 vikur og gripið í þegar þú útbýrð drykkinn sjálfan.
Þannig gerir þú síðan sjálfa gullnu mjólkina
Tekur ½ tsk af túrmerik blöndunni og 1 bolla af kókosmjólk.
Blandar þessu vel saman í potti og hitar. Ekki láta sjóða.
Bætir síðan kanil og hunangi saman við og að lokum sírópi til að bragðbæta. Og fyrir þá sem vilja krydda meira má bæta cayenne pipar við.