Þetta er stórsniðgur réttur til að hafa í kvöldmatinn, í klúbbinn eða brönsinn.
Sænsk pönnukökurúlla með fyllingu. En Svíar gera oft pönnuköku í ofnskúffu og setja þá jafnvel beikon í hana – en hér er fylling sett yfir pönnukökuna og henni síðan rúllað upp. Alveg svakalega gott!
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift en hún bauð fjölskyldunni upp á þessa gómsætu pönnuköku í kvöldmat.
Það sem þarf
Deig:
- 125 g smjör
- 2,5 dl hveiti
- 3 dl mjólk
- 4 egg
Fylling:
- 3 msk smjör
- 4 msk hveiti
- 3 dl mjólk
- 1,5 dl rjómi
- 3 msk fínhökkuð basilika
- 100 g skinka, skorin í bita
- 1 dl rifinn ostur
- 150 g kokteiltómatar
- 1 tsk salt
- smá svartur pipar
Yfir:
- 1,5 dl rifinn ostur
Aðferð
Hitið ofn í 200°.
Bræðið smjör í potti.
Hrærið hveiti og mjólk saman við smjörið og hitið þar til deigið losnar frá köntum pottarins (hrærið reglulega í).
Takið pottinn af hitanum og hrærið einu eggi í einu saman við deigið með handþeytara.
Setjið deigið í ofnskúffu sem hefur verið klædd með bökunarpappír og bakið í neðri hluta ofnsins í um 20 mínútur.
Þegar pönnukakan er tilbúin er best að hvolfa henni á nýjan bökunarpappír og taka bökunarpappírinn sem pönnukakan bakaðist á af. Látið síðan kólna.
Fylling:
Bræðið smjörið í potti. Og hrærið hveiti saman við.
Bætið mjólk smátt og smátt saman við og hrærið stöðugt í pottinum á meðan.
Bætið rjóma í pottinn og látið sjóða við vægan hita í um 5 mínútur.
Bætið basiliku, skinku og osti í pottinn.
Skerið tómatana í tvennt og hrærið þeim saman við fyllinguna.
Smakkið til með salti og pipar.
Dreifið úr fyllingunni yfir pönnukökuna og rúllið henni upp frá langhliðinni.
Setjið hana á bökunarpappír með sárið niður.
Stráið rifnum osti yfir og bakið í ofninum í 10 mínútur.
Berið pönnukökuna fram heita.