Bolludagurinn er á morgun. Sannir Íslendingar taka samt forskot á sæluna og raða í sig bollum alla helgina -þannig rúllar það bara.
Ef þú ætlar að baka þínar eigin bollur mælum við á Kokteil með að þú prófir litríku og ljúffengu bollurnar af mömmur.is. Af hverju ekki að breyta til og bera bollurnar fram í öllum regnbogans litum með fallegu skrauti?
Í bollurnar þarftu
800 g hveiti
45 g pressuger
2 dl mjólk
1 dl vatn
100 g smjör/smjörlíki
2 egg
½ dl. sykur
¾ tsk salt
3 tsk kardimommudropar
Aðferð
Hitið mjólk og vatn (ylvolgt) og setjið saman við pressugerið og látið standa í 2 mínútur.
Þurrefnin eru sett í skál og gerblöndunni blandað saman við ásamt bræddu smjörlíki, eggjum og kardimommudropum.
Hnoðað vel saman. Látið hefast í 1 klst.
Því næst eru mótaðar kúlur sem eru settar bökunarpappír (aðeins þrýst ofan á hverja kúlu )
Látið hefast í ½ tíma og síðan bakað við 180 °C í c.a. 12 mín.
Sjá nánar HÉR.
Til að gera bollurnar litríkar og skemmtilegar er notaður glassúr og kökuskraut
Það sem þú þarft
flórsykur
eggjahvítu (úr einu eggi)
sítrónusafa
kökuskraut að eigin vali
Aðferð
Flórsykur er settur í skál og örlítið af vatni er bætt út í ásamt smá sítrónusafa og eggjahvítu.
Hrært vel saman þar til að blandan er slétt.
Það þarf að prófa sig áfram með hlutfallið af vökva og flórsykri til að ná hæfilegri þykkt. Það er góð regla að bæta við minna en meira af vökva því það þarf lítið til að glassúrinn verði of þunnur.
Glassúrnum er svo skipt í eins margar skálar og litirnir eiga að vera og matarlit hrært út í hverja skál.
Nú er óhætt að smyrja Glassúr á bollurnar og topppa þær með litríku kökuskrauti. Bollurnar eru svo bornar fram með sultu og rjóma eins og venja er.
Sjá nánar HÉR.
Gleðilegan bolludag 🙂
Sigga Lund