Fyrir marga er kaffi nauðsynlegur hluti af hverjum degi og sumir geta hreinlega ekki byrjað daginn fyrr en þeir hafa fengið kaffibollann sinn.
Færðu kaffið upp á næsta stig
En hvernig væri að færa morgunkaffið, eða bara einhvern kaffibolla dagsins, upp á næsta stig? Af hverju að drekka kaffið alltaf eins, dag eftir dag!
Prófaðu að setja kanil út í kaffið þitt. Flestir ef ekki allir eiga kanil í eldhússkápunum. En ekki samt setja kanilinn út í kaffið eftir að þú ert búin/n að hella upp á. Því þegar kanill er settur svona út í vökva myndar hann hálfgerða klessu ofan á vökvanum og blandast illa.
Svona skaltu gera þetta
Þú þarft kaffivél, kaffifilter (kaffikönnupoka), nýmalað kaffi og kanil.
Setur kaffið í kaffikönnupokann og dreifir svo vel af kanil yfir.
Síðan lagarðu kaffi alveg eins og venjulega.
Lyktin sem fylgir uppáhellingunni er yndisleg og svo er þetta líka virkilega hollt og gott.
Og hér eru góðar ástæður fyrir því af hverju þetta er gott fyrir heilsuna
Kanill er stútfullur af andoxunarefnum.
Kanill inniheldur efni sem hafa bólgueyðandi áhrif á líkamann.
Kanill er talinn geta dregið úr líkum á hjartasjúkdómum.
Kanill heldur blóðsykursmagni líkamans í skefjum.
Kanill þykir geta haft jákvæð áhrif á þróun Azheimers og Parkinsons sjúkdómanna.
Svo eftir hverju ertu að bíða?
Hentu kanil í kaffið!