Þetta er alveg ótrúlega einföld og fljótleg uppskrift – og algjör bragðbomba. En auk þess er hún stútfull af góðum næringarefnum.
Þrátt fyrir að engin olía sé notuð í pestóið þá er það kremkennt og um leið ferskt. Þá er uppskriftin að þessari dásemd líka vegan og glútenfrí.
Með öllum mat
Þetta dásemdar pestó má nota með núðlum, pasta, kjöti, grænmeti og fleira.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort að avókadó og pistasíuhnetur sé ekki eitthvað sem hreinlega smellur saman.
Það sem þarf
1 bolli fersk basilíka
1 bolli ferskt kóríander
2 hvítlauksrif
¼ bolli ristaðar og saltaðar pistasíuhnetur
1 stórt avókadó
¼ bollli sítrónusafi
¼ bolli næringarger
1 msk vatn (eða meira ef þú vilt hafa pestóið þynnra)
¼ tsk salt (eða meira, smakkið til)
Aðferð
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og blandið þar blandan er orðin mjúk. Bætið við vatni og salti eftir smekk.
Geymið síðan í kæli eða njótið strax.
Sjáið hér í myndbandinu hvað þetta er einfalt. En hér er pestóið borið fram með kúrbíts spagettí.