Munið þið eftir Cheerios bitunum góðu frá því í gamla daga?
Vekja þeir ekki upp nostalgíu hjá ykkur?
Það er fáránlega auðvelt að búa svona bita til og þeir eru alveg jafn góðir og okkur minnti.
Þrjú innihaldsefni
Það þarf ekki nema þrjú hráefni til að skella í Cheerios bitana en auðvitað má svo líka leika sér aðeins með þetta og bæta einhverju út í eins og hnetum eða sælgæti til hátíðabrigða. Og jafnvel setja súkkulaði ofan á.
En þetta er samt alveg nógu gott eitt og sér og frábært í krakkaafmæli eða til að eiga í eldhúsinu til að narta í.
Það er hún Valla í Eldhúsinu hennar Völlu sem deilir þessari uppskrift með okkur.
Það sem þarf
1/2 bolla af sírópi (eða hunangi)
1/2 bolla af hnetusmjöri (ekki hollu týpuna, mætti líka gjarnan vera gróft)
3 bollar af venjulegu Cheerios-i
Aðferð
Bræðið síróp og hnetusmjör saman í meðalstórum potti þar til það er vel bráðið saman og fer að bubbla.
Takið af hellunni og bætið Cheerios saman við.
Þjappið ofan í ferkantað form og kælið vel.
Skerið svo í bita. Það er líka hægt að setja þetta í muffins form, svona eins og Rice Krispies kökurnar góðu.
Svo má stækka uppskriftina ef verið er að undirbúa afmæli.
Þetta hverfur ískyggilega hratt!