Hverjum finnst ekki þægilegt og einfalt að grípa í pakka af tilbúnu kökumixi annað slagið! Maður hefur jú ekki alltaf tíma til að gera allt frá grunni.
Nákvæmlega þess vegna er gott að eiga t.d. vinkonu eins og hana Betty Crocker. Kökumix er svo auðvelt og svo eru þessar pakkakökur líka flestar svo góðar.
Og það sem er enn betra er að það má auðveldlega gera kökurnar betri og láta þær líta út fyrir að vera bakaðar frá grunni. Við lumum hér á nokkrum einföldum trixum – svo enginn mun átta sig á því að kakan kemur úr pakka.
Hér eru sjö trix sem þú ættir að prófa
Nýmjólk
Notaðu nýmjólk í stað vatns eins og uppskriftin segir til um á pakkanum. Þetta gerir deigið þéttara.
Sýrður rjómi
Notaðu öll innihaldsefnin eins og upplýsingar á pakkanum segja til um. Bættu síðan tveimur slettum af sýrðum rjóma saman við til að gera kökuna sérstaklega raka.
Majones
Notaðu 1 bolla af majonesi í uppskriftina í stað olíunnar. Við lofum að þetta klikkar ekki og gerir kökuna enn betri!
Smjör
Prófaðu að nota bráðið smjör í stað olíunnar í uppskriftinni – en það lætur kökuna smakkast eins og hún hafi verið bökuð frá grunni og mikil vinna verið lögð í hana. Frábært trix!
Kaffi
Ef þér finnst kaffi og súkkulaðihúðaðar kaffibaunir góðar þá er þetta eitthvað fyrir þig. Prófaðu að skipta vatninu í uppskriftinni út og notaðu tilbúið/uppáhellt kaffi í staðinn í súkkulaðideigið.
Sítróna
Kreistu hálfa sítrónu og rífðu niður 2 msk af sítrónuberki og bættu út í blönduna til að gefa deiginu smá sýru – og fáðu bragð af nokkurs konar sítrónuköku. Þetta á auðvitað ekki við súkkulaðideig.
Búðingur
Viltu enn meira bragð? Bættu þá tveimur matskeiðum af búðingsdufti út í blönduna ásamt öðrum innihaldsefnum eins og segir til um á pakkanum. Súkkulaðiduft fyrir súkkulaðiköku og vanillubúðing fyrir vanilluköku.