Konur með þunnt hár vita hversu erfitt það getur verið að eiga við hárið og að fá fyllingu í það.
Auðveldar lausnir, eins og krullujárn og froða sem á að gera hárið meira, virka ekki alltaf eins og best verður á kosið.
Að eiga við þunnt, flatt eða líflaust hár getur verið vinna en það er síður en svo vonlaust.
Hér eru nokkur góð ráð
1. Notaðu réttu vörurnar í hárið. Fáðu ráðleggingar á hárgreiðslustofunni þinni um val á vörum.
Það er svo miklu auðveldara að eiga við hárið ef efnið sem þú setur í það passar þinni hártegund. Sjampó sem keypt eru úti í matvörubúð gera oft ekki mikið fyrir hárið.
2. Þegar þú blæst og greiðir hárið skaltu forðast að leggja áherslu á að hafa mikla hæð og fyllingu efst því þá eru meiri líkur á að það sjáist í höfuðleðrið og hárið virðist þá enn þynnra.
3. Haltu hárinu heilbrigðu. Notaðu hreinsisjampó annað slagið (fæst á hárgreiðslustofum), láttu klippa hárið reglulega og settu maska í hárið sem er sérstaklega fyrir fínt hár.
4. Prófaðu hárlengingar í hliðar og að aftan. Þær gefa auka fyllingu.
5. Reyndu að takmarka hversu oft og mikið þú notar heit tæki og tól. Fínt hár er viðkvæmara fyrir öllu slíku. Ef þú vilt fá krullur og liði í hárið eru til ýmsar aðrar aðferðir til þess en heit járn.
6. Spáðu vel í klippinguna þína. Þú þarft ekkert endilega að hafa stutt hár þótt hárið sé fínt. Ef þú lætur klippa styttur í það svo það virðist meira þarf að gæta þess að hlutföllin séu rétt svo það virki ekki druslulegt í fínu og þunnu hárinu.