Hakkabuff með lauk er matur sem er svo hefðbundinn og fastgróinn inn í íslenska matarmenningu.
Hjá mörgum kveikir hann líka upp nokkurs konar nostalgíu enda eitthvað sem afar margir hafa alist upp við.
Þetta er dæmigerður heimilismatur sem er afskaplega góður og fellur að smekk flestra.
Buffið er gott að bera fram með kartöflum, sultu og hrásalati eða fersku salati.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér þessari uppskrift með okkur.
Hakkabuff með karamelluseruðum lauki og rjómasósu (uppskrift fyrir 4)
- 600 g nautahakk
- 1/2 dl brauðrasp
- 1/2 dl rjómi
- 1 dl mjólk
- 1 egg
- 1 laukur
- 2 tsk salt
- svartur pipar
- 1 tsk sykur
Blandið rjóma, mjólk og brauðraspi saman í skál og látið standa í 5 mínútur.
Setjið hakkaðan lauk, egg, salt, sykur og pipar saman við og notið töfrastaf til að blanda öllu saman.
Setjið að lokum nautahakkið saman við og blandið öllu vel saman.
Mótið buff og steikið upp úr vel af smjöri.
Karamelluseraður laukur
- 3 gulir laukar
- salt
- sykur
- pipar
- smjör
Skerið laukinn þunnt niður.
Bræðið smjör á pönnu og setjið laukinn á.
Steikið við miðlungshita (passið að hafa hitann ekki of háann), laukurinn á að mýkjast og fá smá lit.
Hrærið annað slagið í lauknum.
Setjið salt, sykur og pipar eftir smekk undir lokin og látið laukinn karamelluserast.
Rjómasósa
- steikingakraftur frá hakkabuffinu
- 2 dl rjómi
- 2 dl sýrður rjómi
- 1-2 grænmetisteningar
- salt og pipar
- sojasósa
- maizena til að þykkja.
Blandið öllu saman í pott og látið sjóða saman.
Smakkið til. Endið á að þykkja með maizena eftir smekk.