Hver þekkir það ekki að glerið í ofnhurðinni á bakaraofninum er grútskítugt!
Með tímanum verður glerið bæði skýjað og skítugt svo erfitt getur verið að sjá inn í ofninn.
Frábær aðferð
Það getur reynst erfitt að ná glerinu skínandi hreinu. En hér er frábær aðferð – þar sem einungis er notast við náttúruleg efni.
Að sjálfsögðu er það matarsódinn sem kemur hér við sögu, en við þreytumst seint á því að fjalla um eiginleika og notkunarmöguleika hans.
Þannig að ef þú vilt vera laus við að nota sterk efni við þrifin á ofninum þínum þá mælum við með að þú prófir þessa aðferð.
Það sem þú þarft er
matarsódi
edik
vatn
spreybrúsi (settu einn hluta ediks á móti níu hlutum vatns í brúsann)
tuskur og handklæði
og jafnvel málningarlímband