Þessi fiskur er alveg frábær réttur á virkum dögum – enda er uppskriftin bæði einföld og fljótleg. Þetta gerist varla einfaldara.
Hér er þessi fína uppskrift að steiktum fiski í kókoskarrý. En það er hún Svava vinkona okkar á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir þessari uppskrift með okkur.
Það sem þarf
- ýsu- eða þorskflök (ca 600-800 g)
- 2 dl hveiti
- 1 dl mjólk
- 1 tsk karrý
- ½ tsk timjan
- 1 egg
- 2 msk kókosmjöl
- salt
- pipar
Aðferð
Öllu hráefni, fyrir utan fiskinn, er hrært saman í skál.
Fiskurinn er skorinn í bita og látinn liggja í blöndunni í 1-1½ klst.
Steikið síðan fiskinn á pönnu og berið hann fram með hrísgrjónum og karrýsósu.
Njótið!