Flestir kannast við það að langa í eitthvað gott en vita ekki hvað það á að vera. Að finnast ekkert vera til en nenna engan veginn út í búð.
Svo ekki sé minnst á sísvanga unglingana sem virðast botnlausir þegar kemur að mat.
Góðar og tekur enga stund
Ein stórgóð redding eru hvítlauksbrauðstangir. Það tekur enga stund að útbúa þær og það er einfalt að eiga hráefnin heima því þau geymast vel.
Stangirnar eru auðvitað frábært meðlæti með pizzum en duga líka vel einar og sér. Það má síðan poppa brauðstangirnar upp með góðri sósu, t.d. pizzasósu, piparostasósu eða jalapenosósu. Súpergott!
Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur uppskrift að þessu einfalda góðgæti.
Hvítlauksbrauðstangir (uppskrift frá Sugarapron)
Það sem þarf
- tilbúið pizzadeig
- 1 msk smjör, brætt
- 1 hvítlauksrif, fínhakkað
- 1/2 bolli rifinn mozzarella
- 1 msk parmesan
- 1 msk þurrkuð basilika
- salt og pipar eftir smekk
Aðferð
Hitið ofn í 220°.
Hrærið brætt smjör og hvítlauk saman í skál og penslið yfir pizzabotninn.
Stráið osti og kryddum yfir botninn.
Skerið pizzabotninn í stangir en takið þær ekki í sundur.
Bakið í 10-12 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og fengið fallegan lit.
Skerið aftur í brauðstangirnar til að taka þær í sundur.
Berið fram heitar eins og þær eru eða með sósu að eigin vali.
Njótið!