Stundum er svo gott að geta gripið til einfaldra og fljótlegra lausna í eldhúsinu og auðvitað enn betra ef það lukkast vel.
Hér er frábær uppskrift að gómsætri banana og súkkulaðiköku sem er tilvalið að henda í ef þú ert með ofþroskaða banana. Og það þarf ekki einu sinni að draga hrærivélina fram.
Það er klárt mál að stórir sem smáir geta gætt sér saman á þessari með ískaldri mjólk.
Það sem þarf
1 pakki Betty Crocker Devils Food Cake Mix
150 gr jógúrt með vanillu (rétt tæplega 1 dós)
1 bolli vel þroskaður banani, maukaður
¼ bolli matarolía
3 egg
¾ bolli litlir súkkulaðidropar eða smátt saxað súkkulaði
2 msk litlir súkkulaðidropar eða smátt saxað súkkulaði
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Smyrjið ca 33 x 23 cm kökuform með olíu eða spreyið með bökunarspreyi.
Setjið innihald Betty Crocker pakkans í stóra skál ásamt jógúrt, banana, olíu og eggjum. Blandið vel saman með sleif eða góðri skeið.
Bætið ¾ bolla af súkkulaði saman við og gætið þess að það dreifist vel um deigið.
Setjið þá deigið í formið og dreifið 2 msk af súkkulaði yfir.
Bakið í ofninum í 30 til 34 mínútur. Stingið í kökuna með pinna eða tannstöngli og ef hann kemur hreinn upp er kakan tilbúin.
Látið kökuna kólna alveg (í svona klukkutíma) og skerið hana síðan í kassalaga bita.
Njótið!
Uppskrift – bettycrocker
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com