Ertu orðin leið/ur á venjulegu hakki og spagettí?
Prófaðu þá þetta einfalda pastagratín!
Þetta er virkilega einfalt og klárlega eitthvað sem allir í fjölskyldunni verða sáttir með – stórir sem smáir. Enda getur ofnbakað hakk og pasta með ostasósu ekki klikkað.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari einföldu og góðu uppskrift.
Það sem þarf
Pastagratín
- soðið pasta (t.d. skrúfur eða makkarónur)
- kjötsósa (steikið 1 bakka af nautahakki, kryddið og setjið niðursoðna tómata eða pastasósu yfir og látið sjóða saman)
- kirsuberjatómatar
- vorlaukur
- mozzarella ostur
Ostasósa
- 4 dl rjómi
- 100 g beikonsmurostur
- 1-2 dl rifinn ostur
- salt og pipar
Aðferð
Hitið ofninn í 220°.
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
Steikið nautahakkið og kryddið eftir smekk. Setjið góða pastasósu eða niðursoðna tómata yfir og látið sjóða saman.
Setjið rjóma í pott ásamt beikonsmurostinum og látið suðuna koma upp. Bætið rifnum osti í pottinn og látið bráðna saman við. Saltið og piprið og takið af hitanum.
Setjið pastað í eldfast mót og hellið kjötsósunni yfir.
Skerið kirsuberjatómata í tvennt og setjið yfir kjötsósuna ásamt niðurskornum vorlauki.
Hellið ostasósu yfir og endið á að strá rifnum mozzarella yfir.
Setjið í ofn í um 20 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og fengið fallegan lit.
Takið út og njótið!