Hver hefur ekki stundum lent í vandræðum með að skera lauk?
Laukurinn rennur til, losnar og fer út um allt og verkið tekur lengri tíma en nauðsynlegt er.
Frábær og einföld lausn
En hér er frábær lausn við því og það eina sem þarf er hárgreiða, svona greiða sem er notuð til að ýfa og lyfta krulluðu hári.
Og það má auðvitað skera fleira en lauk með þessari aðferð, eins og t.d. tómata, sítrónur, agúrkur og fleira.
Algjör snilld!
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert