Grjónagrautur er uppáhald margra, og þá sérstaklega krakka og unglinga. Við fullorðna fólkið hér á Kokteil erum reyndar hrifin af góðum grjónagraut og finnst alltaf fínt að fá graut.
Að standa yfir pottinum
En það eru margir sem nenna ekki að standa yfir pottinum og elda grjónagraut. Og það verður að viðurkennast að grjónagrautur krefst þess að yfir honum sé staðið svo hann festist ekki eða brenni við við botninn.
Þess vegna er þessi uppskrift hér algjör snilld. Það er bara að henda hráefninu í stórt mót og elda í ofninum – einfaldara getur það ekki orðið. Grauturinn sér svo um sig sjálfur í ofninum og það þarf ekkert að passa upp á hann.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- 2,5 dl hrísgrjón (t.d. frá River)
- 1,25 líter nýmjólk
- nokkrar smjörklípur
- 1 tsk salt
- 1 msk sykur
Aðferð
Hitið ofninn í 175°.
Blandið öllum hráefnum saman í stórt eldfast mót (amk 2 lítra).
Setjið álpappír yfir og bakið í miðjum ofni í ca 1,5 klst (það er líka í lagi að sleppa álpappírnum því það myndast himna yfir grautinn sem er síðan flett af).
Þegar grauturinn er tilbúinn er efsta laginu á honum flett af og hrært vel í honum. Þynnið grjónagrautinn með mjólk ef þarf.