Það er alltaf jafn notalegt að eiga eitthvað heimabakað með kaffinu um helgar – og þessar dýrindis lengjur hér svíkja svo sannarlega ekki. Svo er þetta líka frekar einfalt í framkvæmd.
Það eru Dumle bananakaramellurnar sem gefa lengjunum bananabragð og þetta er auðvitað algjört æði.
Hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Það sem þarf
- 150 g smjör við stofuhita
- 3,75 dl hveiti
- 1,5 dl sykur
- 3 msk kakó
- 3 msk sýróp
- 1,5 tsk vanillusykur
- 1,5 tsk lyftiduft
- 15 stk. Dumle bananakaramellur
Aðferð
Hitið ofninn í 175° og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.
Hnoðið öllu hráefninu (fyrir utan karamellurnar) saman í deig.
Skiptið deiginu í þrennt og rúllið út í lengjur. Leggið lengjurnar á bökunarpappírinn.
Skerið Dumlekaramellurnar í tvennt (á lengdina) og þrýstið þeim ofan á lengjurnar og snúið karamelluhliðinni upp.
Bakið í miðjum ofni í 8-10 mínútur.
Takið út úr ofninum og látið kólna aðeins áður en lengjurnar eru skornar niður.
Njótið!