Hvað er betra en gott bananabrauð?
Jú súkkulaði bananabrauð!
Bananar og súkkulaði smellpassa náttúrulega saman.
Flestir kannast við það að vera með banana í eldhúsinu sem liggja undir skemmdum – og þá er auðvitað tilvalið að henda í eitt stykki gott bananabrauð.
Og það er svo sannarlega óhætt að mæla með þessari uppskrift hér.
Það sem þarf
1 bolla hveiti
½ bolla kakó
1 tsk matarsódi
½ tsk lyftiduft
½ tsk salt
¾ bolli púðursykur
2 egg
½ bolli smör, við stofuhita
3 – 4 vel þroskaðir bananar (um 300 gr)
120 gr súkkulaðidropar/súkkulaðibitar
1 stk vanilludropar
Til skreytingar
súkkulaðidropar/bitar
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Takið form (23x13cm) og smyrjið lítillega með olíu eða smjöri. Og setjið bökunarpappír í botninn og út í hliðarnar í forminu svo auðvelt sé að lyfta brauðinu upp úr forminu.
Blandið hveiti, kakó, salti, matarsóda og lyftidufti saman í skál.
Setjið bananana í aðra skál og stappið þá vel saman með gaffli.
Takið smjör og sykur, setjið í skál og hrærið saman með handþeytara þar til blandan er orðin kremkennd. Bætið þá eggjunum við og blandið vel saman.
Látið vanilludropa og banana út í smjörblönduna og hrærið saman.
Bætið þá hveitiblöndunni varlega saman við.
Og að lokum er súkkulaðidropum bætt út í deigið.
Setjið deigið í formið og dreifið súkkulaðidropum yfir.
Bakið í 50 til 60 mínútur eða þar til tannstöngull/pinni kemur hreinn upp þegar stungið er í brauðið.
Takið brauðið út og látið kólna í forminu í svona 10 mínútur áður en það er tekið úr því. Látið síðan kólna alveg áður en það er skorið niður.
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert