Þetta er með fallegri eftirréttum sem við höfum séð og það liggur við að hann sé of fallegur til að borða.
En það er samt alls ekkert flókið að útbúa þessar gullfallegu eplarósir. Og svo er auðvitað einstaklega gaman að bjóða upp á svona fallegan eftirrétt.
Það sem þarf
2 rauð epli
1/2 sítróna
vatn
3 msk. aprikósumarmelaði
smjördeig
kanill
Aðferð
Kjarnhreinsið eplin og skerið í þunnar sneiðar.
Setjið vatn í skál og kreistið safa úr hálfri sítrónu út í.
Leggið eplasneiðarnar í vatnið og setjið inn í örbylgjuofn í svona 3 mínútur.
Takið út og sigtið vatnið frá.
Blandið aprikósumarmelaði og 2 msk. af vatni saman í skál.
Setjið inn í örbylgjuofn í 1 mínútu.
Takið smjördeig og fletjið út og sléttið með kökukefli.
Skiptið því í 6 hluta.
Smyrjið aprikósublöndunni á hvern hluta.
Raðið eplunum á helminginn á deiginu (sjá myndband).
Dreifið kanil yfir ef vill – okkur finnst það ómissandi.
Brjótið upp á deigið og rúllið því upp (sjá myndband).
Setjið rósirnar í múffuform og bakið í ofni við 190 gráður í 40-45 mínútur.
Síðan er fallegt að dreifa örlitlu af flórsykri yfir.
Njótið!