Hefur þú prófað að nota rauðvín í baksturinn?
Margir nota auðvitað rauðvín í matseldina en hafa kannski ekki notað slíkar veigar í kökubakstur.
Drauma brownie
Þetta er líklega drauma brownie/brúnka fyrir marga fullorðna en hún inniheldur rauðvín og ber. Og svo má auðvitað drekka rauðvín með henni því eins og allir vita þá smellpassa rauðvín og súkkulaði saman – alveg fullt af andoxunarefnum.
Það má nota rauðvínsafganga í uppskriftina en mælt er þó með því að nota frekar sætt vín. En ef þú ert ekki með sætt vín þá skaltu bara nota það sem þú átt. Þetta getur ekki klikkað.
Það sem þarf
3 stór egg
1 ¼ bolli sykur
1 ¼ bolli hveiti
½ bolli smjör
½ bolli kakó
170 gr suðusúkkulaði
½ tsk sjávarsalt
¾ bolli rauðvín
½ þurrkuð trönuber
½ bolli valhnetur (má sleppa ef vill)
Aðferð
Leggið trönuberin í rauðvínsbað með því að setja þau í litla skál með víninu. Látið liggja í 30 til 60 mínútur eða þar til berin virðast uppblásin.
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Smyrjið ferkantað form sem er cirka 20×20 cm.
Blandið hveiti og salti saman í skál og leggið til hliðar.
Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði. Og leyfið síðan að kólna í smástund.
Hrærið þá eggin saman við súkkulaðið, eitt í einu.
Bætið þá sykri og kakó saman við og hrærið. Og að lokum hveiti og salti og blandið vel saman.
Takið síðan skálina með berjunum og víninu og hrærið varlega saman við deigið.
Bætið að lokum hnetunum við, ef þið ætlið að nota þær.
Hellið þá blöndunni í formið og dreifið vel úr.
Bakið í 50 til 55 mínútur. Stingið prjóni eða tannstöngli í kökuna til að sjá hvort hún er tilbúin.
Leyfið kökunni að kólna í forminu í um hálftíma og takið hana síðan úr forminu og látið kólna alveg.
Njótið!
Jóna Péturs – kokteillinn@gmail.com
Uppskrift fengin hjá Cookie named Desire