Ef þú hefur hvorki smakkað né bakað sítrónuformköku þá er sko heldur betur kominn tími til.
Þetta er ein besta formkaka sem við á fáum – en sítrónukaka er einstaklega bragðgóð og frískandi.
Uppskriftina að þessu ljúfmeti fékk hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit úr einni af bókunum hennar Nigellu Lawson en Svava hefur aðlagað hana að eigin þörfum.
Það sem þarf
- 125 gr ósaltað smjör
- 175 gr sykur
- 2 stór egg
- rifinn börkur af 1 sítrónu
- 175 gr hveiti
- rúmlega 1 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 4 msk mjólk
Aðferð
Hitið ofninn í 180°og smyrjið formkökumót vel.
Hrærið saman smjöri og sykri.
Bætið eggjum og rifnum sítrónuberki út í og hrærið vel saman.
Bætið hveiti, lyftidufti og salti varlega saman við og leyfið að blandast vel saman.
Að lokum er mjólkinni bætt út í og hrært þar til blandan er slétt.
Setjið degið í smurt bökunarformið og bakið í ca 45 mínútur.
Sítrónusíróp
- safi úr 1 1/2 sítrónu (ca 4 matskeiðar)
- 100 gr flórsykur
Setjið sítrónusafann og flórsykurinn í lítinn pott og hitið varlega þar til sykurinn leysist upp.
Þegar kakan er tilbúin er hún tekin úr ofninum, stungið litlum götum með kökuprjóni ofan á hana alla og sítrónusírópinu hellt yfir.
Njótið!