Þessi dúnmjúka súkkulaði- og bananakaka með léttu súkkulaðikremi er gjörsamlega ómótstæðileg!
Þetta er kaka sem klárast á núll einni svo það þarf ekkert að hugsa um að geyma hana.
Hvernig væri að skella í þessa um helgina!
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari uppskrift.
Banana- og súkkulaðikaka
(Uppskrift frá Hemmets Journal)
Það sem þarf
- 150 g smjör
- 1 ½ dl rjómi
- 1 þroskaður banani
- 3 egg
- 3 dl sykur
- 1 msk vanillusykur
- 1 dl kakó
- 2 tsk lyftiduft
- 4 dl hveiti
Og í kremið
- 100 g suðusúkkulaði
- 150 g mjúkt smjör
- ½ dl kakó
- 1 msk vanillusykur
- 2 dl flórsykur
Til skreytingar
- 1-2 dl kókosmjöl
Aðferð
Hitið ofninní 175°.
Bræðið smjörið og blandið því saman við rjómann.
Stappið bananann og hrærið honum saman við rjómablönduna.
Þeytið egg, sykur og vanillusykur þar til blandan verður ljós og létt.
Blandið þurrefnunum saman við eggjablönduna og blandið að lokum rjómablöndunni varlega saman við.
Setjið deigið í skúffukökuform (um 25 x 35 cm) og bakið í neðri hluta ofnsins í 20-25 mínútur.
Látið kökuna kólna áður en kremið er sett á.
Krem:
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Látið kólna aðeins.
Hrærið súkkulaðinu saman við smjörið.
Bætið kakó, vanillusykri og flórsykri saman við og hrærið saman þar til kremið er orðið mjúkt og létt í sér.
Setjið kremið yfir kökuna og stráið kókosmjöli yfir.
Njótið!