Nú þegar tími smákökubakstursins er liðinn er tilvalið að skella í eina bananaköku.
Maður gæti þurft að trappa sig niður í súkkulaðiáti eftir hátíðarnar svo þessi uppskrift er alveg tilvalin þar sem hún inniheldur súkkulaðibita.
Þetta er kaka sem er fljót að klárast enda eru bananar og súkkulaði fullkomin blanda.
Uppskriftin sem er frá henni Svövu á Ljúfmeti og lekkerheit er bæði einföld og fljótleg!
Það sem þarf
Bananakaka með súkkulaðibitum
- 2 dl sykur
- 2 tsk vanillusykur
- 3 egg
- 2 dl hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 100 g smjör
- 2 bananar
- 100 g dökkt súkkulaði
Aðferð
Hitið ofninn í 175°.
Hrærið sykur, vanillusykur og egg saman þar til blandan verður létt.
Hrærið hveiti og lyftidufti saman við ásamt mjúku smjörinu.
Stappið bananana og saxið súkkulaðið og hrærið í deigið.
Setjið deigið í smurt formkökuform og bakið neðarlega í ofninum í ca 55 mínútur.