Þessi súkkulaðibitakaka er tilvalin fyrir þá sem eru á paleo mataræði og auðvitað alla hina sem vilja sneiða hjá hveiti.
Kakan er afskaplega einföld í gerð – en hún inniheldur aðeins sex hráefni og undirbúningur hennar er bæði auðveldur og fljótlegur.
Hnetusmjörið í kökunni gefur henni í senn mjúka og klessta áferð, alveg eins og góðar kökur eiga að vera.
Það sem þarf
1 ½ bolli kasjúhnetusmjör (eða venjulegt fínt hnetusmjör)
2 egg
½ bolli kókossykur
1 tsk matarsódi
1 msk bráðin kókosolía
85 gr dökkt súkkulaði + smá aukalega til að setja ofan á kökuna
sjávarsalt (til að dreifa yfir kökuna)
Aðferð
Hitið ofninn að 180 gráðum.
Skerið súkkulaðið í bita.
Setjið hnetusmjör, egg, kókossykur, matarsóda og kókosolíu í stóra skál og blandið þessu öllu vel saman
Bætið súkkulaðinu varlega saman við.
Takið pönnu (um 20 cm að stærð) sem má fara í ofn og smyrjið hana með kókosolíu eða smjöri.
Setjið deigið í pönnuna og dreifið vel úr því.
Dreifið súkkulaði og sjávarsalti yfir deigið.
Bakið í ofninum í 20 til 25 mínútur eða þar til kakan er orðin brún í endana og mjúk í miðjunni.
Takið þá kökuna úr ofninum og leyfið henni að kólna í 15 mínútur áður en hún er skorin.
Njótið!
Sjáðu hér í myndbandinu hvernig þetta er gert